"Við eigum að markaðssetja okkur sem land góðra háskóla sem eru framarlega á sviði kennslu og rannsókna. Við þurfum sérstaklega að efla háskólana á landsbyggðinni, það hefur skipt gífurlega miklu máli. Ég vil hafa háskólabelti um allt landið enda heldur það byggðinni saman í meira mæli en flest annað og sterkt samfélag háskóla gæti þrýst á umræðu um málefni þeirra jafnt og þétt, ekki bara fyrir kosningar. Menntun á að vera áhuga- og baráttumál þeirra sem starfa í stjórnmálum, allt kjörtímabilið, en sannleikurinn er sá að áhugi á menntamálum ristir ekki djúpt í stjórnmálaflokkunum, nema kannski hjá einstaka baráttumanni. Háskólamenntun er lykillinn að lífskjörum framtíðarinnar og við viljum bjóða kennslu sem bæði er í góðum tengslum við fræðin og raunveruleikann", Ágúst Einarsson, hagfræðingur og nýr rektor á Bifröst, í Morgunblaðinu í dag.
mánudagur, janúar 15, 2007
18:10 -
© Kristinn 2005 - Powered for Blogger by Blogger Templates hits.