Maður verður víst að viðurkenna að Neytendahornið hefur ekki verið eins virkt hérna á síðunni og væntingar stóðu til.
Sem betur fer hefur Bónus tekið málið upp á sína arma. Þetta eru sko orð í tíma töluð: http://bonus.is/?page_id=223
Þversögnin er sú að landsframleiðsla á mann er óvíða hærri en á Íslandi, lífskjörin eru hins vegar bara la la því það fæst ekkert fyrir peninginn, það er allt svo dýrt! Fáránlegt að hafi ekki verið tekið á þessu. Áfram Bónus!
said...
Orð í tíma töluð, svo sannarlega! Ég áttaði mig ekki á þessari geðveiki fyrr en ég flutti í burtu. Þetta er náttúrulega bara fáránlegt!!! Og allir taka þátt í þessu án þess að segja neitt...ruglið eina!!
Hlakka til að fá þig í heimsókn á eyjuna mína vinur minn :)
Lellz.
Sigga said...
Það mætti líka sýna svona reikningsdæmi fyrir íslenska vöru. Hversu mikið fer í vasa bóndans í raun og veru og hvert restin fer. Ég hlakka til að komast í fyrstu landamæraverslunarferðina í haust, kaupa danskar skinnlausar kjúklingabringur á undir 1000 ISK kílóið.
Kristinn said...
Bændurnir eru örugglega ekki of góðir af sínu en SÍS-mafían sér vafalítið til þess að niðurstöður svoleiðis reikniæfinga verði þaggaðar niður. Hlakkaði til að koma heim alveg þangað til ég fattaði að þá þarf maður að lifa á ristuðu brauði og pasta.