<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/4016206?origin\x3dhttp://stinnihemm.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>
Ástin mun slíta okkur í sundur

Rafrænt tilverustig Kristins Hermannssonar 

mánudagur, júlí 03, 2006

23:10 -

Frammistaðan hérna er nettur skandall. Í sem stystu máli var júní mjög skemmtilegur mánuður. Náttúrlega haldið vel upp á prófalok, síðan fórum við Elín til Berlínar, sem var bara snilld. Þá fékk ég skólasystkini mín frá Maastricht þau Claudi, Kati og Richard í heimsókn og fast á hæla þeirra leit Binna mín við. Sú vika var gernýtt og m.a. tekinn túr um hálöndin. Svo átti ég leið um Lundúnir, sem og Gísli bróðir. Við skelltum okkur á sushi bar í Selfridges. Heimurinn er svo lítill að þar hitti ég Andreu skólasystur mína úr HR sem býr í Luxembourg. Áður en yfir lauk skellti ég mér svo á rallið í Soho með Brasilíumönnum sem komu hingað uppeftir í vetur og fengu hjá mér guided túr og voru meira en til í að endurgjalda greiðann. Svo er lokaritgerðin náttúrlega komin á fullt. Ætla að stelast aðeins til Íslands á föstudag og vera í eina og hálfa viku. Brúðkaup hjá Gunnu minni á laugardag og svo frétti ég að væri Samtakaball sama kvöld, veit ekki alveg hvernig það mixast, það má náttúrlega ekki flana að neinu þegar brúðkaup eru annars vegar.


5 comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hlakka til að sjá þig á Íslandinu góða :)
Elín.  


Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Kristinn minn, missti af þér á Skype í dag, var ekki heima :(
Finn ekki e-mailið þitt, sendu mér línu á vinnupóstinn, sirryb.

Heyrumst,
Sirrý  


Anonymous Nafnlaus said...

Gaman að sjá að það er að færast líf í þetta. Enn skemmtilegra að lesa að þú sért á leið hingað. Það er sko ekki inni í umræðunni að þú komir ekki með okkur á hommadjamm á svona degi. Og hananú!  


Anonymous Nafnlaus said...

...þessar síðustu línur voru frá mér. :)

Hilmar  


Blogger Kristinn said...

Ha ha ha, frábært að heyra....við verðum bara að redda þyrlu eða eitthvað. Hljótum að finna eitthvað út úr þessu ;)  


Skrifa ummæli

© Kristinn 2005 - Powered for Blogger by Blogger Templates hits.