árný said...
úff hvað ég er sammála þér að öllu leiti!!! ég er crazy.
said...
Djöfull var þetta lásí keppni, hræbilleg lög og hörmulegir flytjendur. Monaco? Skíttíðig! Djöfulsins viðbjóður. Lordi og Silvía voru þau einu sem lyftu þessu upp
said...
Djöfull var ég stoltur yfir því hvað var mikið púað á hana. Ég hef aldrei nokkurn tímann heyrt púað jafn svakalega á nokkurn keppanda í Júróvisjón.
Annars er ég alveg sammála Kristni, það þarf að fara að vinna markvisst í því að vinna þessa helvítis keppni. Maður hélt árið 1999 að þetta væri alveg að koma, tækist ábyggilega á næsta ári, en leiðin hefur bara legið niðurávið.
Sigga said...
Kannski Hitlersgöngulagið hafi fattast og allir geðveikt móðgaðir.
Kristinn said...
Já maður er bara alveg í rusli yfir þessu. Er að reyna að lifa mig inní að halda með Finnlandi, þeir eru soldið töff. Breski gaurinn er þroskaheftur, það er aumingjahrollur dauðans.
said...
ég vill meina að þetta hafi gengið upp 100%. Það var púað á hana, Peppe og Romario voru svakalegir, tilvísanir Sylvíu í evrópska sögu og stjórnmál (gæsagangurinn með hönd á lofti) voru krassandi. Auðvitað komst hún ekki áfram. Eurovision er soddan menningarkimi og þegar hún kemur og dissar keppnina og kúltúrinn í kringum hana í tætlur þá verða hinir innvígðu sármóðgaðir. Vissulega eru Finnarnir að djóka sem og Litháarnir en það er enginn broddur í því djóki.
Lengi lifi Sylvía og fokkmerkin sem hún gaf Eurovision
said...
Það voru samt margir júróvisjónaðdaáendur sem föttuðu þetta. Til að mynda gáfu sænsku Júró-hommarnir (Schlager bögerna) henni fimm stjörnur. Hún var sú eina, fyrir utan Carolu, sem fékk fimm. Þessir menn eru miklir júró spekúlantar og hafa skrifað langar úttektir fyrir Stockholm City í vikunni.
said...
Evrópa kann sko ekki gott að meta. En alltaf erum við jafn fúl og hissa við íslendingar, svolítið fyndið! Góð hugmynd Kristinn með næsta ár, við verðum að fara að massa þetta :)
Lella kúl
Kristjan said...
Það þarf að senda eitthvað þjóðlegt atriði, eitthvað rammíslenskt. Langar má þá til þess að stinga upp á Gylfa Ægis með nikku, í lopapeysu og í dreifbýlistúttum. Annars er ég með spurningu fyrir þig Kristinn þar sem þú ert einn af okkar menntuðustu mönnum í viðskiptafræðum og slíku: Var þetta Karl Wernersson sem tók þessi ógurlegu dansspor í framlagi Litháa?
said...
Bara hætta þessu kjaftæði og senda Björk. Ef hún vill ekki fara þá tökum við af henni vegabréfið, rétt eins og við myndum gera við Eið Smára ef hann myndi neita að spila með landsliðinu á örlagastundu.