Í ísskápnum býður fasani í marineringu, planið að skella honum í ofninn í kvöld! Ákvað að taka áskorun Normans Tebbit, fyrrum ráðherra í stjórn Thatcher – var nefnilega orðinn gríðarlega leiður á vöruúrvali stórmarkaðanna. Norman er í nokkurskonar einkaherferð til að fá fólk til að borða alvöru breskan mat í staðinn fyrir allt verksmiðjujukkið. Þetta byrjaði á því að kallinn fór að ljósrita og dreifa uppskriftum í hverfinu sínu og nú er það gengið svo langt að hann er að undirbúa matreiðslubók!Sigga said...
Það liggur við að maður farið að éta bara riffilskotið, bölvað að bíta í þetta!
Nú á þetta hug minn allan:
http://www.royalhighlandshow.org/
19.-22. júní 2008.
Mikið væri gaman að skella sér!
Kristinn said...
Já þetta er bölvað stand, en fuglinn smakkaðist alveg prýðis vel, milt villibráðarbragð. Annars rakst ég á að tímabilinu lauk 1. feb svo annað hvort hefur hann verið vel hanginn eða ólöglegur sem náttúrlega gerir allan mat betri.
Já Sigga, um að gera að skella sér á Royal Highland! Ég styð það og mun taka að mér að skipuleggja dagskrá fyrir og eftir sýninguna ef áhugi er á. Held maður þyrfti að skella sér þessa helgi, spurning bara í hverju maður á að vera. Tími ekki að kaupa mér stígvél fyrir tugi þúsunda eins og þetta lið gengur í.
said...
Royal higland!!!
Tengist það á einhvern hátt vini mínum honum Highland Park viskíi?


