laugardagur, febrúar 12, 2005
22:34 -
Í Hamborg býr Súsanna Thams, kærasta Sigga, og var auðsótt að gista hjá henni. Eins og kunnugt er bjó Siggi um tíma í Hamborg og fór því á kostum við leiðsögnina. Við þræddum höfnina og Rheperbahnen þar sem vændiskonur rússnesku mafíunnar þrábuðu okkur þjónustu sína. Hápunkturinn í leiðsögn Sigga um rauðljósahverfið var Herbertstrasse þar sem dömurnar sitja úti í glugga, til í tusk. Síðan tók ég krók á móti bragði og dró Sigga að skoða gay senuna í St. George.
© Kristinn 2005 - Powered for Blogger by Blogger Templates hits.