Skorturinn á losunarkvóta fyrir olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum og hátt verð hans á frjálsum markaði undirstrikar hversu mikið hið opinbera niðurgreiðir áliðnaðinn. Fyrir utan lágt raforkuverð og skattafslætti fá þeir losunarkvótann gefins. Í reynd er um að ræða gríðarlegan byggðastyrk til Akraness, Hafnarfjarðar, Reyðarfjarðar og nágrannabyggða. Sem er eitt og sér ekkert til að missa svefn yfir – en aumingjahrollinn setur að við tilhugsunina um að bestu bitana fá bandarískir kaupsýslumenn sem voru svo klókir að bjóða íslenskum sveitamönnum í kokteil og bjölluhringingar í New York og fá í staðinn auðlindir landsins á silfurfati.
Losunarkvótarnir eru þjóðareign sem á að selja hæstbjóðanda og nota afraksturinn til að lækka tekjuskatt einstaklinga. Það er fáránlegt að fólk þurfi að borga fyrir að mæta í vinnuna en það sé ókeypis að sóða út umhverfið.
fimmtudagur, ágúst 30, 2007
09:30 -
föstudagur, ágúst 24, 2007
13:32 -
Ekki eru orðnar mjög háar aðgangskröfurnar í MBA nám í HÍ ef menn þurfa ekki lengur að hafa lokið fyrstu gráðu til að komast inn. Greinilega nóg að borga bara skólagjöldin. Framsóknarþingmennirnir Magnús Stefánsson og Birkir Jón Jónsson ætla í MBA á Melunum í haust. Hvorugur þeirra hefur lokið háskólagráðu.
föstudagur, ágúst 03, 2007
11:47 -
Sá mann á Skúlagötunni með sítt hár í tagli. Hann var í svörtum bomber-jakka með appelsínugulu fóðri, einhverjum no-name gallabuxum og svörtum Slayer bol. Í smá stund fannst mér ég kominn aftur í Gaggó. Viss um hann angaði af pajouli.
fimmtudagur, ágúst 02, 2007
10:25 -
Afskaplega lítið dularbúið diss á Guðlaug Þór: http://fridjon.eyjan.is/2007/08/02/til-hvers-eru-menn-i-politik/
© Kristinn 2005 - Powered for Blogger by Blogger Templates hits.