<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID\x3d4016206\x26blogName\x3d%C3%81stin+mun+sl%C3%ADta+okkur+%C3%AD+sundur\x26publishMode\x3dPUBLISH_MODE_BLOGSPOT\x26navbarType\x3dSILVER\x26layoutType\x3dCLASSIC\x26searchRoot\x3dhttps://stinnihemm.blogspot.com/search\x26blogLocale\x3dis_IS\x26v\x3d2\x26homepageUrl\x3dhttp://stinnihemm.blogspot.com/\x26vt\x3d1201978586094407619', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe", messageHandlersFilter: gapi.iframes.CROSS_ORIGIN_IFRAMES_FILTER, messageHandlers: { 'blogger-ping': function() {} } }); } }); </script>
Ástin mun slíta okkur í sundur

Rafrænt tilverustig Kristins Hermannssonar 

þriðjudagur, júní 21, 2005

01:02 -


Mér hlotnaðist sá heiður að taka þátt í eftirminnilegum stuðviðburði þegar brúðkaupshljómsveitin Gunnar Briem og Hlekkirnir fluttu nokkur sérdeilis vel valin gleðilög. Þeir Gunni, Valdi, Geiri og Jói Bróðir (Valda þ.e.a.s.) höfðu undirbúið sig vandlega fyrir veisluna og pikkað upp nokkur stuðlög, m.a. nokkur þrælöflug eighties lög, sem þeir fluttu af tærri snilld. Þeir fá sko 9,5 fyrir að endurskapa hljóðheim þeirra sítt-að-aftan manna með fullu synthablasti!

Strákarnir höfðu meldað sig í vor og beðið mig um að syngja nokkur lög með þeim, sem mér leist nú stórvel á ? enda telur maður ekki eftir sér að taka 2-3 lög fyrir vini og vandamenn, og þó það væru 5 fyrir vandalausa. Mér brá hins vegar pínu, þó ég reyndi að halda kúlinu, þegar Valdi hringdi í mig á þriðjudagskvöld og spurði hvort ég væri með blað og penna við höndina. Þetta endaði semsagt með því að ég söng 13 laga prógramm með strákunum og skemmti mér vægast sagt konunglega. Lella gella kom líka sterk inn í frontinum og það kom sér vel að við skyldum hafa æft finnsku diskó sporin þegar ég heimsótti hana til Dublin í vetur.

Það var alveg stórkostlegt að heyra bræðandi synthastefin í Everybody wants to rule the world, að ekki sé talað um rafrænt gjallið í Obsession eftir eins smells bandið Animotion (einnig þekkt sem Fashion TV stefið). Þetta prógramm var náttúrlega bara snilld, Look of Love eftir ABC, Heat is on, Maneater eftir Hall & Oates, Do you think I?m sexy, Funkytown og diskósmellurinn Let?s groove svo nokkur stuðdæmi séu tekin. Veislugestirnir voru líka alveg með á nótunum og tjúttuðu af öllu afli.

Þessi mynd var tekin á leið til brúðkaups í sól og sumaryl. Gunni, Sólveig og Siggi á til að græja bindi. Posted by Hello


Anonymous Nafnlaus said...

Maneater? Hvar var I can't go for that? Eina almennilega Hall & Oats lagið...

æji - það er kannski ekki sanngjarnt að segja það.

Steini  


Blogger oakleyses said...

coach purses, true religion jeans, nike air max, ray ban pas cher, vans pas cher, ralph lauren pas cher, coach outlet, north face, hogan, true religion outlet, nike free, true religion jeans, air jordan pas cher, hermes, air force, ray ban uk, ralph lauren uk, lululemon, air max, north face, sac guess, new balance pas cher, hollister pas cher, nike air max, mulberry, lacoste pas cher, nike blazer, louboutin pas cher, abercrombie and fitch, nike roshe run, converse pas cher, michael kors, tn pas cher, true religion jeans, longchamp pas cher, nike free run uk, timberland, burberry, nike roshe, michael kors, oakley pas cher, kate spade handbags, michael kors, coach factory outlet, sac longchamp, hollister, coach outlet, michael kors, vanessa bruno, nike air max  


Blogger yanmaneee said...

goyard bags
balenciaga sneakers
yeezy boost 350
yeezy boost 350
moncler
balenciaga
supreme shirts
golden goose starter
jordan 1 off white
curry 6
 


Skrifa ummæli

© Kristinn 2005 - Powered for Blogger by Blogger Templates hits.